Skráning hafin
Tryggðu þér pláss á næstu önn. Æfingasett, forgangur að námskeiðum og 15% afsláttur á takkaskóm og boltum fylgja skráningu.
Skrá núna
Framúrskarandi þjálfun fyrir fótboltafólk framtíðar — við bestu aðstæður og með athygli sem hver leikmaður á skilið.
Það sem mótar hverja æfingu
Við viljum að leikmenn njóti þess að æfa og komi glaðir af æfingu.
Gæði þjálfunar skiptir höfuðmáli. Ítarleg þjálfun og jákvæð og uppbyggjandi endurgjöf er lykill í okkar nálgun.
Einstaklingurinn skiptir máli. Við viljum að hver leikmaður fái athyglina sem þarf til að verða betri.
Við æfum til þess að verða betri. Með góðri ástundun og áhuga verðum við betri.
Gylfi Þór Sigurðsson og Ingólfur Sigurðsson skipuleggja og stýra þjálfuninni ásamt framúrskarandi hópi þjálfara. Þjálfararnir okkar eru með víðtæka reynslu af leik og þjálfun á háu stigi.
Sjá þjálfarana
Hver æfing er 45 mínútur og hver mínúta nýtt. Æfingar fara fram í hópum þar sem hver leikmaður fær raunverulega athygli og endurgjöf. Takmarkaður fjöldi kemst að í hvern hóp til að tryggja gæði þjálfunar.
Skoða æfingatöflu